Umdæmislönd
Úganda
Sendiráð Íslands, Kampala
Plot 3, Lumumba Avenue, Nakasero
Kampala, PO Box 7592, Uganda
Unnur Orradóttir Ramette (2019)
Netfang: [email protected]
Opnunartími: 09:00-15:30 (mán.-fim.), 9:00-13:30 (fös.) virka daga
Sími: +256 312 531 100
Hildigunnur Engilbertsdóttir, forstöðumaður
Ekki er gagnkvæmur samningur við ríkið og því þarf alltaf að leita til viðkomandi stjórnvalds til að fá réttar upplýsingar um það hvort áritun þurfi og hvort hún sé þá möguleg við komu.
Ferðamenn á leið til Úganda geta sótt um áritun á netinu (Electronic Visa). Það má gera á slóðinni https://www.visas.immigration.go.ug
Til hvaða erlends aðila á að leita? Sendiráðs Úganda í Kaupmannahöfn.
Athugið vel: Ef gagnkvæmur samningur er ekki á milli Íslands og viðkomandi ríkis verða ferðamenn að fá upplýsingarnar staðfestar hjá viðkomandi erlendu sendiráði, ræðisskrifstofu eða öðrum opinberum aðila þess ríkis sem ferðast skal til. Upplýsingar þessar geta breyst án þess að utanríkisráðuneytinu sé um það tilkynnt. Því er ferðamönnum eindregið ráðlagt í þeim tilvikum þar sem ekki er gagnkvæmur samningur í gildi að fá þær upplýsingar er hér greinir staðfestar.Fyrirvari
Upplýsingarnar á þessari síðu eru eingöngu settar fram í leiðbeiningarskyni og án ábyrgðar af hálfu utanríkisráðuneytisins.
Hafa ber hugfast að reglur geta breyst hratt í einstaka löndum og að staðaryfirvöld eiga ávallt lokaorðið um lagaframkvæmdina.
Ferðafólk ber ætíð sjálft ábyrgð á ferðaundirbúningi og því að kynna sér þær kröfur sem gerðar eru til ferðamanna á sérhverjum áfangastað.