Hoppa yfir valmynd

Um sendiskrifstofu

Sendiráð Íslands í London var opnað árið 1940 og var annað íslenska sendiráðið sem opnað var eftir að íslenska utanríkisþjónustan var stofnuð sama ár. Sendiráðið þjónar Bretlandi, auk umdæmislöndunum Írlandi og Möltu.

Fjórtán ræðisskrifstofur eru í umdæmislöndum sendiráðsins, þar af ellefu í Bretlandi. Sendiráðið er jafnframt fastanefnd Íslands gagnvart Alþjóðasiglingamálastofnuninni (IMO) í London.

Hlutverk sendiráðsins er að veita þjónustu við Íslendinga í umdæmisríkjunum og gæta hagsmuna Íslands, einkum á sviði utanríkis-, viðskipta- og menningamála. Á árinu 2018 bjuggu á milli tvö og þrjú þúsund Íslendingar í Bretlandi og á árinu 2019 nam fjöldi erlendra ferðamanna á Íslandi sem komu frá Bretlandi um 262 þúsund manns.

Sendiráð Íslands í London

Heimilisfang

2A Hans Street
London SW1X 0JE, UK

Sími: +44 (0)20 7259 3999

Netfang 

london[hjá]utn.is

Afgreiðsla mán-fim kl. 09:00 - 16:30 og fös 09:00 - 16:00

Símatími mán-fös kl. 10:00 - 13:00

Sendiráð Íslands í LondonFacebook hlekkurSendiráð Íslands í LondonTwitte hlekkur
No image selected
NafnStarfsheitiNetfang
Brynja Jónsdóttirannar sendiráðsritari[email protected]
David Wiltonbifreiðarstjóri[email protected]
Drífa Arnþórsdóttirstaðarráðinn fulltrúi[email protected]
Hrefna D. Minshullritari[email protected]
Jóhanna Jónsdóttirvaramaður sendiherra[email protected]
Orri Úlfarssonstaðarráðinn fulltrúi[email protected]
Sigurlaug Jóhannesdóttirstaðarráðinn fulltrúi[email protected]
Sturla Sigurjónssonsendiherra[email protected]

Sendiherra

Sturla Sigurjónsson

 

Sturla Sigurjónsson tók við sem sendiherra Íslands gagnvart Bretlandi þann 16. nóvember 2020. 

Störf:

  • Sendiherra Íslands í Bretlandi, jafnframt sendiherra gagnvart Írlandi, Möltu, Jórdaníu og Katar 2020-
  • Ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins 2017-2020
  • Sendiherra Íslands í Kanada, jafnframt sendiherra gagnvart Ekvador, Perú og Costa Rica, 2014-2017
  • Sendiherra Íslands í Danmörku, jafnframt sendiherra gagnvart Tyrklandi, Rúmeníu og Búlgaríu 2010-2014
  • Ráðgjafi um alþjóðamál í forsætisráðuneytinu 2006-2009
  • Sendiherra Íslands á Indlandi 2006
  • Skrifstofustjóri alþjóðaskrifstofu 2003-2006
  • Skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu 2002-2003
  • Staðgengill sendiherra í Brussel (EES/EFTA/ESB) 2000-2002
  • Staðgengill fastafulltrúa hjá NATO og VES, Brussel 1997-2000
  • Staðgengill fastafulltrúa hjá S.þ., New York 1996-1997
  • Sendiráðunautur í fastanefndinni hjá S.þ., New York 1994-1996
  • Ræðismaður og síðan aðalræðismaður í New York, New Jersey, Connecticut og Rhode Island 1994-1997
  • Sendiráðsritari á alþjóðaskrifstofu 1991-1994
  • Starfsmaður í stjórnmáladeild alþjóðastarfsliðs höfuðstöðva NATO, Brussel 1988-1991
  • Sendiráðsritari á varnarmálaskrifstofu 1987-1988

Menntun:

  • BA sagnfræði og enska, HÍ 1983
  • Cand.Mag. enskar bókmenntir, HÍ 1985

Fjölskylduhagir:

  • Sturla er kvæntur Elínu Jónsdóttur, hjúkrunarfræðingi, og eiga þau fimm börn. 
No image selected

Í umdæmislöndum sendiráðsins starfa fjórtán ólaunaðir ræðismenn, þar af ellefu í Bretlandi. Upplýsingar um þá má finna hér að neðan:

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum