Sendiráð Íslands í Vín
Fréttir frá utanríkisráðuneytinu
Sendiráð Íslands og fastanefnd gagnvart alþjóðastofnunum í Vín
Sendiskrifstofan í Vín gegnir tvíþættu hlutverki. Hún er fastanefnd Íslands gagnvart Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (ÖSE), skrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Vín (UNOV), Alþjóðakjarnorkumálastofnuninni (IAEA) og skrifstofu undirbúningsnefndar samningsins um allsherjarbann við tilraunum með kjarnorkuvopn (CTBTO). Þá er skrifstofan tvíhliða sendiráð gagnvart fimm ríkjum: Austurríki, Króatíu, Slóveníu, Slóvakíu og Ungverjalandi.