Menning og menntun
Eitt af verkefnum sendiráðsins er að hlúa að og efla menningar- og menntasamstarf Íslands og Bandaríkjanna. Sendiráðið getur haft milligöngu um íslenska listviðburði í Bandaríkjunum, tónleika, leiklist, myndlistarsýningar o.fl., en tekið er fram að ekki er um fjármögnun viðburða að ræða.
Sendiráðið aðstoðar íslenska námsmenn í Bandaríkjunum eftir föngum, sbr. þjónusta við Íslendinga, og vinnur að auknu mennta- og vísindasamstarfi milli ríkjanna. Að neðan er að finna tengla í vefsetur íslenskra menntastofnanna sem eru í samstarfi við Bandaríkin.
Vefsetur sem tengjast menningu Íslands og Bandaríkjanna
Vefsetur sem tengjast menntamálum Íslands ogBandaríkjanna
- Fulbright stofnunin á Íslandi (m.a. upplýsingar um nám í Bandaríkjunum)
- Leifur Eiriksson Foundation
- RANNÍS
- Snorraverkefnið
Stofnun Leifs Eiríkssonar
Stofnun Leifs Eiríkssonar, sem er í höndum stjórnar tilnefndri af Seðlabanka Íslands, ríkisstjórn Íslands og University of Virginia, var komið á fót til að fjármagna skipti á fræðimönnum milli Íslands og Bandaríkjanna.
Stofnuninni er eingöngu ætlað að sinna verkefnum í þágu góðgerða, bókmennta, menntunar og vísinda og veita styrki og fjárhagsaðstoð til að efla fræðimennsku og fræðilegar rannsóknir. Styrkþegar skulu vera fræðimenn frá Bandaríkjunum og Íslandi.
Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu Stofnunar Leifs Eiríkssonar.