Hoppa yfir valmynd
16. maí 2018

Íslensk hönnun á 3daysofdesign í Kaupmannahöfn

Íslenskur fáni eftir Kjarval - mynd

Í tilefni af aldarafmæli fullveldisins standa Hönnunarmiðstöð Íslands og sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn fyrir tveimur sýningum á íslenskri hönnun á hönnunarviðburðinum 3daysofdesign, sem fram fer í Kaupmannahöfn dagana 24.-26. maí næstkomandi.

ILLUMS BOLIGHUS x ICELANDIC DESIGN

Illums Bolighus, er þekktasta hönnunarvöruhús Dana þar sem norrænni hönnun
hefur verið gerð góð skil í meira en 75 ár. Á hátíðinni 3daysofdesign beinir Illums
sjónum að íslenskri hönnun sem undanfarin ár hefur tekið sér stöðu á sviði
norrænnar hönnunar.

Sýningin er unnin í samstarfi Illums Bolighus, Hönnunarmiðstöðvar Íslands og
Sendiráðs Íslands í Kaupmannahöfn í tilefni af aldarafmæli fullveldisins.
Sýnendur eru FÓLK, Erla Sólveig Óskarsdóttir, AGUSTAV, Ragna Ragnarsdóttir —
MARÝ, Bjarni Sigurdsson Ceramics, SKATA, Dögg Design, Berlinord, ANNA
THORUNN, Fuzzy, FÆRID, Bryndís Bolladóttir, Þórunn Árnadóttir, Kjartan
Óskarsson.

Sýningaropnun fer fram í Illums Bolighus við Amagertorv, fimmtudaginn, 24. maí kl.
15.00—18.00 þar sem verður skálað fyrir því besta í íslenskri samtímahönnun.

Fáni fyrir nýja þjóð

Árið 1914 kallaði fánanefnd eftir tillögum frá almenningi að íslenskum þjóðfána. Ein
tillaganna er núverandi þjóðfáni Íslands.

Alls bárust 28 hugmyndir, flestar í rituðu máli. Grafíski hönnuðurinn Hörður Lárusson
byggði nýverið á lýsingunum, rannsakaði frekar og bætti upp með eigin
hugmyndaflugi og umbreytti tillögum í myndrænt form. Afraksturinn var gefinn út á
bók, sem nefnist einfaldlega Fáninn.

Á sýningunni mun gefa að líta úrval tillaganna, þeirra á meðal óhefðbundinn fána
teiknaðann af Jóhannesi Kjarval. Einnig verður frumsýndur fáni, teiknaður og
saumaður eftir lýsingum sjálfs Danakonungs, Kristjáns X, sem nýverið fundust í
dagbókarfærslum konungs.

Þjóðfáni er án efa eitt sterkasta táknræna form sjálfsvitundar þjóðar, og þessi sýning
mun veita innsýn í, hvernig einstaklingar, allt frá almennum borgurum til konungs,
gerðu tilraunir til að hanna sérkenni íslensku þjóðarinnar.
Sýningin verður opin til 5. september 2018.

Benedikt Jónsson sendiherra Íslands í Kaupmannahöfn býður til opnunar
sýningarinnar, sem fram fer í sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn, Strandgade 89,
1401 Kbh, miðvikudaginn 23. maí kl.16.30-18.30.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta