Fullveldisafmæli Íslands fagnað í Umeå
Estrid Brekkan, sendiherra Íslands, heimsótti Umeå þann 26. október til þess að taka þátt í dagskrá í tilefni af 100 ára fullveldisafmæli Íslands.
Sendiherra hélt tvö erindi, annað um jafnrétti á Íslandi, en hitt um hinar miklu breytingar sem hafa átt sér stað í íslensku samfélagi síðan árið 1918. Þá tók hún þátt í pallborðsumræðu þar sem meðal annars var rætt um það hvað Norðurlöndin geta lært af hvor öðru en einnig hvernig Norðurlandabúar geta lært meira um hvora aðra. Þá var kvikmyndin And Breathe Normally eftir Ísold Uggadóttur sýnd. Sendiherra átti einnig fund með landshöfðingja Västerbottenléns í ferðinni til Umeå.
From: Estrid Brekkan/UTN/NotesSTJR
To: Haukur Johnson/UTN/NotesSTJR
Dagskráin var skipulögð af Föreningen Norden í Västerbotten í samstarfi við sendiráð Íslands, sveitarfélagið Umeå, Länsstyrelsen Västerbotten, Västerbottens museum, Umeå universitet og Folkets bio.