Ísland mælir fyrir ÖSE-könnun á mannréttindabrotum á hinsegin-fólki í Tsjetsjeníu.
Guðni Bragason, fastafulltrúi Íslands í Vín
Fastafulltrúi Íslands í fastaráði Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu
mælti í dag fyrir könnun á grófum mannréttindabrotum gagnvart hinsegin
fólki í Tsjetsjeníu. Guðni Bragason, fastafulltrúi Íslands, flutti á
fundi ráðsins yfirlýsingu af
hálfu sextán aðildarríkja ÖSE til að fá svör frá rússneskum
stjórnvöldum við þessum ásökunum. Ennfremur afhenti hann rússneska
fastafulltrúanum bréf þess efnis.
Aðilar, sem láta sig mannréttindi varða, telja sannanir fyrir því, að
hinsegin fólk í Tsjetsjeníu verði fyrir stöðugum ofsóknum af hálfu
stjórnvalda og hafi verið tekið af lífi án dóms og laga. Á síðustu
misserum hafa þessar ásakanir oft verið teknar upp í fastaráði ÖSE,
meðal annars með yfirlýsingum sem Ísland hefur verið meðflytjandi að,
þar sem skorað er á stjórnvöld í Rússlandi að stöðva ofbeldið, vernda
fórnarlömb og rannsaka ásakanir um ofsóknirnar. Hingað til hafa Rússar
veitt ófullnægjandi svör í fastaráðinu og þykir stjórnvöldum í ríkjunum
sextán að við svo búið megi ekki lengur sitja.
Í bréfinu segir meðal annars að skrifleg ósk aðildarríkjanna frá því í
sumar um svör við spurningum um mannréttindabrot gagnvart hinsegin
fólki í Tsjetsjeníu hafi ekki borið árangur. Því hafi þau ákveðið að
setja af stað svokallað Moskvuferli (Moscow Mechanism),
samkvæmt samþykkt ÖSE frá 1991. Það gerir ráð fyrir að sett verði á fót
nefnd sérfræðinga, sem rannsaki málið til hlítar og gefi Rússlandi, ÖSE
og alþjóðasamfélaginu ráð um mögulega lausn varðandi þær spurningar, sem
lagðar voru fram. Óskað er eftir góðri samvinnu við rússnesk stjórnvöld
um þetta.
Undir bréfið skrifa fastafulltrúar Belgíu, Kanada, Frakklands,
Þýskalands, Írlands, Hollands, Bretlands, Bandaríkjanna, Norðurlandanna
og Eystrasaltsríkjanna, en fjöldi annarra aðildarríkja styður ferlið
gagnvart Rússlandi.
Í erindi aðildarríkjanna í sumar voru lagðar fram nokkrar spurningar til
rússneskra stjórnvalda samkvæmt hinu svokallaða Vínarferli ÖSE (Vienna Mechanism).
Þar voru þau til dæmis spurð hvernig þau hefðu rannsakað ásakanir um
mannréttindabrot gegn hinsegin fólki í Tsjetsjeníu, meðal annars aftökur
á 27 einstaklingum sem sagðar eru hafa átt sér stað í janúar í fyrra.