Hoppa yfir valmynd
15. nóvember 2018

Watanabe styrktarsjóðurinn við Háskóla Íslands

Umsóknarfrestur um styrki í sjóðinn er 15. janúar ár hvert. Umsóknir og fylgigögn skal senda í tölvupósti á [email protected] Athugið að umsóknir og fylgigögn eiga að vera á ensku.

Sjóðurinn var stofnaður við Háskóla Íslands árið 2008 og er stofnun sjóðsins liður í því að styrkja mikilvæg fræðileg tengsl Íslands og Japans. Sjóðurinn veitir íslenskum stúdentum og vísindamönnum tækifæri til að nema og starfa í japönsku samfélagi og það sama gildir um japanska stúdenta og vísindamenn, sem eiga þess kost að koma hingað.

Stofnandi sjóðsins, Tozisho Watanabe, lauk MBA námi frá Pepperdine Univerisity í Kaliforníu 1992. Hann er stofnandi Nikken-fyrirtækisins, sem hefur höfuðstöðvar í Bandaríkjunum. Á yngri árum var hann nemi við Brandeis-háskólann í Waltham í Massachusettes í Bandaríkjunum og kynntist þar Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra. Watanabe fékk styrk til námsins í Bandaríkjunum og var ævinlega þakklátur þeim sem studdu hann til náms. Við undirritun stofnskrár sjóðsins sagðist Watanabe vilja gjalda fyrir aðstoðina með þ ví að setja sjálfur á fót sjóð til að styrkja ungt fólk til náms erelendis. Hann hafði því samband við Geir Haarde, gamlan skólabróður sinn, með það í huga að stofna sjóðs við íslenskan háskóla.

Stjórn sjóðsins er skipuð þremur fulltrúum til þriggja ára. Rektor Háskóla Íslands skipar formann sjóðsins, Tom Watanabe og Geir Haarde, eða ættingjar þeirra, einn stjórnarmann hvor.

Í stjórn sjóðsins sitja Már Másson, prófessor í lyfjaefnafræði, sem jafnframt er formaður stjórnar, Toshizo „Tom“ Watanabe, stofnandi sjóðsins, og Dr. Kristín Ingvarsdóttir, dagskrárstjóri í Norræna húsinu og stundakennari við Háskóla Íslands.

Frekari upplýsingar: Hafliði Sævarsson, verkefnastjóri Skrifstofu alþjóðasamskipta, [email protected], Helga Brá Árnadóttir, verkefnastjóri Styrktarsjóða Háskóla Íslands, [email protected], 525-5894 og Már Másson, formaður stjórnar, [email protected].

Hér má að lesa reynslusögur og frásagnir fyrrverandi styrkhafa Watanabe sjóðsins við Háskóla íslands.

Nánar um sjóðinn á vef Háskóla Íslands.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta