Hoppa yfir valmynd
18. desember 2018 Utanríkisráðuneytið

Ísland undirritar fjóra loftferðasamninga

Benedikt Ásgeirsson sendiherra ásamt fulltrúa Sameinuðu arabísku furstadæmanna - myndUtanríkisráðuneytið
Nýir möguleikar opnuðust fyrir íslenska flugrekendur í síðastliðinni viku á árlegri ráðstefnu Alþjóðaflugmálastofnunarinnar þegar samninganefnd Íslands undirritaði loftferðasamninga við fjögur ríki. 

Ráðstefnan var að þessu sinni haldin í Naíróbí í Kenía þar sem fulltrúar sjötíu ríkja komu saman. Samninganefnd Íslands undirritaði fjóra loftferðasamninga, við Búrkína Fasó, Jamaíka, Rúanda og Tyrkland, auk þess sem undirrituð var viljayfirlýsing um loftferðir með Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Þá fundaði sendinefndin meðal annars með sendinefnd Bretlands vegna flugmálasamskipta landanna með hliðsjón af útgöngunni úr Evrópusambandinu, Suður-Kóreu vegna loftferðasamnings milli landanna og átti viðræður við sendinefnd Marokkó um gerð loftferðasamnings. Þá átti hún samráðsfund með sendinefnd Noregs.  

„Fyrir eyríki eins og Ísland skipta samgöngur í lofti miklu máli enda er flugiðnaðurinn lykilþáttur í íslenskum efnahag. Það er því ávallt fagnaðarefni þegar nýir loftferðasamningar eru gerðir eða eldri samningar uppfærðir vegna þeirra jákvæðu hagrænu áhrifa sem það hefur í för með sér,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra. 

Ísland hefur gert loftferðasamninga og viljayfirlýsingar sem heimila flug til að minnsta kosti 115 ríkja, en aukin umsvif íslenskra flugrekenda á síðustu árum hafa kallað sérstaklega á gerð loftferðasamninga. Þótt samningarnir veiti misjafnlega víðtæk réttindi er að jafnaði um að ræða gagnkvæma heimild til farþega- og farmflugs milli samningsríkja. 

Íslensku sendinefndina skipuðu tveir sendiherrar Íslands, Benedikt Ásgeirsson og Unnur Orradóttir Ramette. 
 
 
  • Benedikt Ásgeirsson sendiherra ásamt fulltrúa Jamaíku - mynd
  • Benedikt Ásgeirsson sendiherra ásamt fulltrúa Rúanda - mynd

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta