Timo Soini utanríkisráðherra Finnlands í opinberri heimsókn til Íslands
Timo Soini utanríkisráðherra Finnlands var í opinberri heimsókn á Íslandi 13.-15 janúar. Leiðin lá til Siglufjarðar og Akureyrar, þar sem norðurslóðamál voru ofarlega á dagskrá. Auk tvíhliða fundar utanríkisráðherra Íslands og Finnlands hitti Soini forseta Íslands og heimsótti Alþingi þar sem hann fundaði með utanríkismálanefnd.
Viðtal við Soini utanríkisráðherra Finnlands á Rúv
Fréttatilkynning frá finnska utanríkisráðuneytinu
Ráðherrarnir sóttu í dag opinn fund um málefni norðurslóða í Háskólanum á Akureyri.