Hoppa yfir valmynd
28. febrúar 2019

Opnun ljósmyndasýningarinnar Breyttur

Ljósmyndasýningin "Breyttur" með ljósmyndum eftir Gunnar Freyr Gunnarsson var opnuð af sendiherra Íslands, Benedikti Jónssyni í anddyri sendiráðsins fyrr í mánuðnum. Sýningin inniheldur vetrarmyndir frá Íslandi og Grænlandi og er framlag ljósmyndarans til þess að vekja athygli á þessum einstaka heimshluta og hlutverki okkar allra í að varðveita sérstöðu hans. Gunnar Freyr er þekktur instagram ljósmyndari undir nafninu ”Icelandic explorer” og hefur hann þar um 310.000 þúsund fylgjendur. Öll verk Gunnars eru til sölu, og mun sýningin standa gestum og gangandi opin til 29. apríl frá kl 9-16 á virkum dögum.

Ljósmyndir: Hasse Ferrold

  • Opnun ljósmyndasýningarinnar Breyttur  - mynd úr myndasafni númer 1
  • Opnun ljósmyndasýningarinnar Breyttur  - mynd úr myndasafni númer 2

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta