Hoppa yfir valmynd
1. mars 2019

Kvikmyndadagar, daganna 1. - 10. mars á Norðurbryggju í Kaupmannahöfn

 

Ísold Uggadóttir, Guðný Halldórsdóttir, Ása Helga Hjörleifsdóttir, Elsa María Jakobsdóttir og Valdís Óskarsdóttir eru allar á leið á kvikmyndahátíðina Nordatlantiske Filmdage í Kaupmannahöfn sem fer fram dagana 1.-9. mars.

Konur í kvikmyndagerð eru í brennidepli á árlegu kvikmyndahátíðinni Nordatlantiske Filmdage sem á sér stað í lista- og menningarmiðstöðinni Nordatlantens Brygge í hjarta Kaupmannahafnar.

Ísold Uggadóttir sýnir Andið eðlilega á opnun hátíðarinnar 1. mars, en einnig verða sýndar kvikmyndirnar Ungfrúin góða og húsið eftir Guðnýju Halldórsdóttur, Svanurinn eftir Ásu Helgu Hjörleifsdóttur, stuttmyndin Atelier eftir Elsu Maríu Jakobsdóttur og kvikmyndin Sveitabrúðkaup eftir Valdísi Óskarsdóttur.

Á boðstólnum verða líka pallborðsumræður, en einnig verður boðið upp á Masterclass med Valdísi Óskarsdóttur þar sem hún ræðir feril sinn við dönsku kvikmyndablaðakonuna Nönnu Frank Rasmussen.

Á hátíðinni verður líka að finna kvikmyndir frá Færeyjum og Grænlandi, en hátíðin stendur fram til 9. mars.

Norðurbryggja (NordatlantensBrygge) stendur að hátíðinni í samstarfi við m.a. Sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn og Kvikmyndamiðstöð Íslands og með stuðningi frá Nordisk Kulturfond, Nordens Institut i Grønland og Det Danske Filminstitut. Kvikmyndadagarnir verða opnaðir formlega með ávarpi sendiherra Íslands, Benedikts Jónssonar.

Nánari upplýsingar um hátíðina má finna á www.nordatlantens.dk/filmdage

 

 

 

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta