Hoppa yfir valmynd
4. apríl 2019

Formennska Íslands í Norðurskautsráðinu kynnt fyrir sendiherrum í Kaupmannahöfn

Ísland tekur við formennsku í Norðurskautsráðinu frá Finnum í maí. Að því tilefni kynnti Einar Gunnarsson, sendiherra og verðandi formaður embættismannanefndar Norðurskautsráðsins, undirbúning að formennsku Íslands fyrir sendiherrum í Kaupmannahöfn. Málefni norðurslóða hafa á undanförnum árum orðið æ fyrirferðameiri á alþjóðavettvangi og tengist það m.a. loftslagsbreytingum, umræðum um nýtingu og vernd náttúruauðlinda og opnun nýrra siglingaleiða. Norðurskautsráðið hefur fest sig í sessi sem mikilvægasti samráðsvettvangurinn um málefni Norðurslóða og veitir formennskan Íslendingum einstakt tækifæri til að stuðla að því að áherslur okkar á sjálfbæra þróun, sjálfbær samfélög og vinnu gegn áhrifum loftslagsbreytinga á norðurslóðum fái hljómgrunn meðal ríkja og samstarfsaðila ráðsins. Í því samhengi er ekki síst brýnt að beina sjónum að hafinu og orkumálum.

  • Formennska Íslands í Norðurskautsráðinu kynnt fyrir sendiherrum í Kaupmannahöfn  - mynd úr myndasafni númer 1
  • Formennska Íslands í Norðurskautsráðinu kynnt fyrir sendiherrum í Kaupmannahöfn  - mynd úr myndasafni númer 2

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta