Hoppa yfir valmynd
2. júlí 2019

Afhending trúnaðarbréfs í Bangladesh

Guðmundur Árni Stefánsson sendiherra í Nýju Delí, Indlandi, afhendir forseta Bangaldesh, Abdul Hamid, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands gagnvart Bangladesh - mynd

Guðmundur Árni Stefánsson sendiherra í sendiráði Íslands í Nýju Delí, Indlandi, afhenti trúnaðarbréf sitt í Bangladesh þann 27.júní síðastliðinn við hátíðlega athöfn. Forseti Bangladesh, Abdul Hamid veitti því viðtöku og í kjölfarið áttu þeir viðræður um samskipti ríkjanna, sem er m.a. á vettvangi sjávarútvegsmála. Þá ræddi sendiherra einnig við utanríkisráðherra landsins, Abdul Momen. Lýsti ráðherrann þar yfir áhyggjum af þróun loftlagsbreytinga og hvatti Ísland til dáða sem formennskuríki í Norðurskautsráðinu.

Íbúafjöldi Bangladesh er 160 milljónir, en tugir milljóna starfa erlendis sem farandverkamenn. Fátækt er mikil í landinu, en hagvöxtur hefur verið 7-8% hin síðustu ár.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta