Hoppa yfir valmynd
10. júlí 2019 Heilbrigðisráðuneytið

Bréf norrænna heilbrigðisráðherra um rafræna fylgiseðla með lyfjum afhent í Brussel

Gunnar Pálsson sendiherra og Vytenis Andriukaitis framkvæmdastjóri - mynd

Gunnar Pálsson, sendiherra Íslands í Brussel afhenti í dag, bréf til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins  um að skoðað verði að opna heimild til að notast við rafræna fylgiseðla með lyfjum. Bréfið afhenti hann Vytenis Andriukaitis, framkvæmdastjóra skrifstofu heilsu- og fæðuöryggis Evrópusambandsins (DG SANTE Health and Food Safety). Bréfið er undirritað af Svandísi Svavarsdóttur, heilbrigðisráðherra, fyrir hönd norrænu heilbrigðisráðherranna.

Samkvæmt gildandi reglum Evrópusambandsins skulu lyfjapakkningar innihalda fylgiseðil með viðkomandi lyfi á tungumáli þess lands þar sem lyfið er selt. Fyrirkomulagið felur í sér ýmsa annmarka, ekki síst fyrir lítil málsvæði. Er því þrýst á um að breyta reglunum þannig að ríkjum verði heimilt að nota rafræna fylgiseðla eingöngu.

Rafrænir fylgiseðlar lækka kostnað og auka öryggi

Í bréfinu er rakið að rafrænir fylgiseðlar muni auðvelda sameiginleg lyfjainnkaup tveggja eða fleiri landa og þannig stuðla að lægri kostnaði. Einnig er bent á að rafrænir fylgiseðlar geti aukið öryggi sjúklinga þar sem sjúklingar geti fengið seðilinn á tungumáli sem þeir skilja. Eins sé hægt að uppfæra seðilinn jafnskjótt og þörf er á. Þá verður seðillinn auðveldari aflestrar því hægt verður að m.a. stækka letur og línubil í rafrænum seðli. Í bréfinu er því lýst að meðal fámennra þjóða með eigið tungumál séu annmarkar á núgildandi kerfi, því hár prent- og pökkunarkostnaður geti valdið því að markaðssvæðið verður ekki eins eftirsótt og ella og sum lyf skili sér því ekki inn á markaðinn.

Norræn samvinna

Norræna ráðherranefndin um félags- og heilbrigðismál (MR-S) hefur tekið fyrir málefni rafrænna fylgiseðla með lyfjum og hefur embættismannanefnd ráðsins  (EK-S) fylgt málinu eftir á undanförnum misserum á bæði norrænum og evrópskum vettvangi. Bréf norrænu heilbrigðisráðherranna er liður í þeirri eftirfylgni. Ísland gegnir formennsku í norrænu ráðherranefndinni árið 2019. Einn liður í formennskuáætlun Íslands í ár er norrænn fundur um rafræna fylgiseðla sem haldin verður á Íslandi þann 17. október n.k.

 

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta