Martin sæmdur stórriddarakrossi þýska sambandslýðveldisins
Martin Eyjólfsson, skrifstofustjóri alþjóða- og öryggisskrifstofu utanríkisráðuneytisins og fyrrverandi sendiherra Íslands í Berlín, var í gær sæmdur stórriddarakrossi þýska sambandslýðveldisins. Það var Dietrich Becker, sendiherra Þýskalands á Íslandi, sem sæmdi Martin viðurkenningunni.
Martin Eyjólfsson var skipaður sendiherra Íslands í Berlín árið 2016 og gegndi því embætti þar til í ágúst á þessu ári en á þeim tíma gekkst sendiráðið fyrir margvíslegum viðburðum, ekki síst á menningarsviðinu. Auk þess er skemmst að minnast vel heppnaðra heimsókna Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, og Frank-Walter Steinmeier, forseta Þýskalands, hingað til lands í sumar en sendiráðið í Berlín átti ríkan þátt í skipulagningu þeirra.
Riddararkossinn (þ. Großes Verdienstkreuz) er æðsta viðurkennning þýska sambandslýðveldisins en hún er veitt bæði þýskum og erlendum ríkisborgurum fyrir framlag til stjórnmálalegrar, menningalegrar eða efnahagslegrar uppbyggingar Þýskalands. Fáum Íslendingum hefur hlotnast þessi heiður hingað til.