Hoppa yfir valmynd
31. janúar 2020

Fyrirlestur um Ísland fyrr og nú hjá Háskóla 3ja æviskeiðsins í Uppsala

Sendiherra Íslands, Estrid Brekkan, hélt fyrirlestur fyrir Háskóla 3ja æviskeiðsins í Uppsala - myndBengt Everitt / Senioruniversitetet

Síðastliðinn mánudag hélt sendiherra Íslands, Estrid Brekkan, fyrirlestur innan fyrirlestraraðarinnar „Ástandið í heiminum vorið 2020“ fyrir Háskóla 3ja æviskeiðsins í Uppsala.

Háskóli 3ja æviskeiðsins í Uppsala telur um 4000 meðlimi og er opin öllum sem náð hafa 58 ára aldri eða hafa að öðrum ástæðum farið á eftirlaun fyrr á ævinni. Samtökin bjóða upp á ýmsa viðburði og tilfelli til símenntunar; fyrirlestraraðir, menningartengdar heimsóknir, ferðalög og fleira.

Fyrirlesturinn um Ísland, sem bar titilinn „Ísland fyrr og nú“ var sá fyrsti í röðinni í fyrrnefndri fyrirlestraröð og um 460 manns mættu á staðinn til að hlusta á sendiherrann segja frá íslenskum staðháttum, efnahag og samfélagsmálum. Færri komust að en vildu og augljóst að áhuginn á Íslandi er mikill.

  • Háskóli 3ja æviskeiðsins í Uppsala - mynd

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta