Ráðuneytisstjóri á fundi með yfirmanni IAEA.
Sturla Sigurjónsson ráðuneytisstjóri átti mánudaginn fundi með nýjum yfirmanni Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar (IAEA), Rafael Mariano Grossi frá Argentínu. Til umræðu var m. a. eftirlit stofnunarinnar með kjarnorkuáætlunum ýmissa ríkja, svo sem Íran, og horfur í nýtingu kjarnorku, fjármögun stofnunarinnar og nýja tækni. Ræddir voru möguleikar á styrkingu samstarfs milli Íslands og IAEA, m.a. á sviði þróunarstarfs IAEA.