Ráðuneytisstjóri fundar í Tókýó
Í gær fór fram reglubundið tvíhliða pólitískt samráð íslenskra og japanskra stjórnvalda þegar Sturla Sigurjónsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, fundaði í Tókýó með Yasushi Masaki, skrifstofustjóra Evrópuskrifstofu japanska utanríkisráðuneytisins. Er þetta í annað sinn sem slíkur fundur er haldinn en fundirnir eru mikilvægur hluti af auknu samstarfi landanna.
Á meðal umræðuefna á fundinum var áframhaldandi efnahagssamráð vegna hugsanlegrar gerðar fríverslunarsamnings landanna og viðleitni Íslands að hefja könnunarviðræður um mögulegar fríverslunarviðræður.
Á fundinum voru alþjóða- og öryggismál og málefni norðurslóða einnig rædd en þess má geta að Ísland og Japan standa sameiginlega að alþjóðlegum fundi vísindamálaráðherra um rannsóknasamstarf á norðurslóðum í Tókýó í nóvember nk.
Auk samráðsfundarins átti ráðuneytisstjóri fundi með Íslenska viðskiptaráðinu í Japan, japönsku þróunaraðstoðarstofnuninni JICA, Shinichi Nakatani aðstoðarutanríkisráðherra Japans og Shingo Yamagami skrifstofustjóra efnahagsskrifstofu utanríkisráðuneytisins.
Fundaröð ráðuneytisstjóra lauk svo með fundum í dag með fulltrúum japanska menntamálaráðuneytisins auk iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis.