Tímabundin skrifstofa
Við minnum á að sendiráðið er flutt á milli hæða og er nú að finna á 7.hæð í sömu byggingu og áður í Stortingsgata 30. Afgreiðslutími sendiráðsins er sem áður, alla virka daga á milli kl 10:00 – 15:00. Vegna aukinna smita í Osló biðjum við alla um að hafa samband við okkur og bóka tíma fyrir komu í sendiráðið. Eins biðjum við alla um að fresta heimsókn nema brýna nauðsyn beri til. Það þarf að gæta að ítrustu sóttvörnum þegar mætt er í sendiráðið og þurfa allir að bera andlitsgrímu.
Hægt er að hafa samband við okkur og panta tíma í síma 2323 7530 eða senda okkur tölvupóst á [email protected]