Nýr forseti allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna
Í vikunni fóru fram kosningar í embætti forseta 76. allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna. Í kjöri voru dr. Zalmai Rassoul, fyrrverandi utanríkisráðherra Afganistan, og Abdulla Shahid, utanríkisráðherra Maldíveyja. Svo fór að Abdulla Shahid vann með talsverðum yfirburðum, eða 143 atkvæðum gegn 48. Hann tekur því við embætti forseta þann 14. september nk. og mun handleika fundarhamarinn góða, sem Ísland veitti Sameinuðu þjóðunum upphaflega að gjöf árið 1952 – og á sér margbrotna sögu.