Hoppa yfir valmynd
16. september 2021

Utanríkisráðuneytið styður jarðvarmaverkefni á Norður-Indlandi

Samstarfssjóður utanríkisráðuneytisins við atvinnulíf um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna, sem hvetur til framlags atvinnulífsins til þróunarsamvinnu, hefur veitt 30 milljón króna styrk til verkefnis á vegum GEG Power ehf. Verkefnið snýr að notkun lághita jarðvarma til að koma á fót kæligeymslum fyrir epli í Kinnour í Himachal Pradesh-fylki á Norður-Indlandi.

GEG ehf. er þróunarfélag á sviði jarðhita með höfuðstöðvar á Íslandi og byggir á yfir áratugs reynslu af þróun og uppbyggingu smærri jarðhitavirkjana. Síðan 2011 hefur fyrirtækið byggt 16 jarðhitavirkjanir með raforkuframleiðslugetu samtals upp á 85,6MW í Kenya og á Íslandi.

Verkefnið tengist fjórum af sautján heimsmarkmiðum Sameinuðu Þjóðanna: Markmiði 7 um sjálfbæra orku; markmiði 8 um góða atvinnu og hagvöxt; markmiði 10 um aukinn jöfnuð og markmiði 13 um aðgerðir í loftlagsmálum.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

Heimsmarkmið - mynd
Heimsmarkmið - mynd
Heimsmarkmið Sþ: 10 Aukinn jöfnuður
Heimsmarkmið Sþ: 13 Verndun jarðarinnar
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta