Hoppa yfir valmynd
21. október 2021

Samningur um sjónvarpsútsendingar yfir landamæri undirritaður af Íslands hálfu

Ragnhildur Arnljótsdóttir, fastafulltrúi Íslands hjá Evrópuráðinu í Strassborg, undirritaði Evrópusamning um sjónvarpsútsendingar yfir landamæri fyrir hönd íslenskra stjórnvalda. - mynd

Ragnhildur Arnljótsdóttir, fastafulltrúi Íslands hjá Evrópuráðinu í Strassborg, hefur undirritað Evrópusamning um sjónvarpsútsendingar yfir landamæri fyrir hönd íslenskra stjórnvalda.

Markmið samnings Evrópuráðsins um sjónvarpsútsendingar yfir landamæri (ECTT, European Convention on Transfrontier Television) er að auðvelda útsendingar og endurvarp sjónvarpsefnis yfir landamæri samningsríkjanna. Samningurinn er fyrsti sinni tegundar sem gerður var til að koma á sameiginlegum meginreglum um dreifingu sjónvarpsefnis yfir landamæri.

Þýðing samningsins markast nú m.a. af útgöngu Breta úr Evrópusambandinu, en Bretar hafa tilkynnt að þeir muni nýta sér þennan sjónvarpssáttmála Evrópuráðsins og eru þegar aðilar að honum. Noregur, Liechtenstein og Sviss eru jafnframt þegar aðilar að samningnum og talið er mikilvægt að Ísland verði það einnig. Er það m.a. mat Fjölmiðlanefndar að undirritun og fullgilding samningsins muni auðvelda öll samskipti á þessu sviði við bresk yfirvöld eftir útgöngu Breta úr Evrópusambandinu.

Ísland mun taka við formennsku í Evrópuráðinu í nóvember árið 2022, í annað sinn frá upphafi en 47 Evrópuríki eiga aðild að ráðinu. Undirbúningur fyrir formennskuna gengur vel og reikna má með viðburðum bæði hér á landi og erlendis á formennskutímabilinu og í aðdraganda þess.

Hægt er að kynna sér samninginn og breytingar við hann.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta