Staða staðarráðins ritara við fastanefnd Íslands hjá Atlantshafsbandalaginu laus til umsóknar
Fastanefnd Íslands hjá Atlantshafsbandalaginu hefur fyrirsvar og sinnir hagsmunagæslu fyrir Íslands hönd á vettvangi bandalagsins. Við fastanefndina starfa tíu manns og er skrifstofa hennar staðsett í höfuðstöðvum bandalagsins í Evere í Brussel. Auk þess fer starfsemi fram á skrifstofu fulltrúa Íslands hjá yfirherstjórninni í Mons og þarf hlutaðeigandi að sinna verkefnum þar í einstaka tilfellum.
Staða staðarráðins ritara við fastanefndina er nú laus til umsóknar.
Helstu verkefni
- Móttaka, símsvörun og tölvupóstsamskipti
- Skjalavarsla
- Aðstoð við umsýslu vegna rekstrar
- Undirbúningur heimsókna
- Aðstoð við starfsfólk fastanefndar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Haldgóð menntun og starfsreynsla sem nýtist í starfi
- Góð almenn tölvukunnátta
- Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
- Færni í frönsku æskileg
Við bjóðum
- Vinnustað sem sinnir krefjandi hagsmunagæslu fyrir hönd Íslands
- Alþjóðlegt starfsumhverfi
- Góða vinnuaðstöðu í nýjum höfuðstöðvum Atlantshafsbandalagsins
- Starfskjör samkvæmt belgískum reglum
Leitað er að einstaklingi sem hefur ríka þjónustulund og jákvætt viðmót, tekur frumkvæði og er lipur í mannlegum samskiptum, vinnur vel undir álagi og gengur skipulega til verks. Hlutaðeigandi þarf að standast öryggisvottun íslenskra stjórnvalda áður en til ráðningar kemur.
Frekari upplýsingar veitir Atli Már Sigurðsson í síma +32 (0)2 707 5089.
Umsóknir á íslensku ásamt ferilskrá skulu berast á netfangið [email protected] fyrir 7. febrúar 2022.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir.