Íslenskur skiptibókamarkaður og upplestur fyrir börn
Í tilefni af útgáfu bókarinnar Sigurfljóð í grænum hvelli eftir Sigrúnu Eldjárn, í sérstakri útgáfu á bæði íslensku og sænsku, verður stórskemmtileg barnadagskrá á Internationella biblioteket á Kungsholmen, sunnudaginn 22. maí, með upplestri, vinnustofu og íslenskum skiptibókamarkaði.
Dagskráin verður eftirfarandi:
12:00 – 12:30 Tekið við bókum fyrir skiptibókamarkaðinn.
13:00 – 13:30 Sögustund þar sem lesið verður upp úr bókinni Sigurfljóð í grænum hvelli (Viktoria och den gröna explosionen) sem nú er kominn út í sérstakri útgáfu á bæði sænsku og íslensku, ætlaðri tvítyngdum börnum.
13:30 – 14:30 Skiptibókamarkaður og vinnustofa: Þórunn Vigfúsdóttir og Arina Stoenescu hjá Pionier Press leiða vinnustofu þar sem börn fá að búa til sínar eigin bækur. Samtímis fer fram skiptibókamarkaður með íslenskum bókum.
Viðburðurinn er haldinn í samstarfi Íslendingafélagsins í Stokkhólmi, Internationella biblioteket á Kungsholmen, bókaútgáfunnar Pionuer Press og sendiráðsins.
Viðburðurinn er opinn öllum og skráning er ekki nauðsynleg. Nánari upplýsingar má nálgast á Facebook-viðburði Íslendingafélagsins í Stokkhólmi og á heimasíðu Internationella biblioteket á Kungsholmen.