Hoppa yfir valmynd
13. ágúst 2023 Utanríkisráðuneytið

Flugsveit bandaríska flughersins á Íslandi

Flugsveit bandaríska flughersins er væntanleg til landsins í dag, sunnudaginn 13. ágúst, þar sem hún verður við æfingar með bandalagsríkjum í Norður-Evrópu.Um er að ræða þrjár B-2 Spirit flugvélar með allt að 200 manna liðsafla sem mun hafa aðsetur á öryggissvæðinu í Keflavík næstu vikur á meðan æfingar standa yfir.

Undirbúningur fyrir heimsóknina hefur staðið yfir um nokkurra vikna skeið en þetta er í þriðja skipti sem flugsveit af þessu tagi kemur til Íslands.

Viðvera bandarísku flugsveitarinnar fer fram á grundvelli varnarsamnings Íslands og Bandaríkjanna og er mikilvægt framlag til fælingaraðgerða í Norður-Evrópu. Landhelgisgæsla Íslands annast í umboði utanríkisráðuneytisins framkvæmd verkefnisins í samvinnu við Isavia.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta