Hoppa yfir valmynd
19. október 2023

Kynning á verkum listafólksins Huldu Rósar Guðnadóttur og Joseph Marzolla

Kynning á verkum listafólksins Huldu Rósar Guðnadóttur og Joseph Marzolla “Experiencing the world Arctic-ly” var haldin í embættisbústaðnum í París síðastliðinn mánudag.

Hreyfing og tími í vistfræðilegu samhengi er aðalþemað í listrænni vinnu listamannanna Huldu Rósar og Joseph Marzolla og nýta þau sér helst kvikmyndalist sem tjáningarform. Hulda hefur hlotið margvísleg verðlaun fyrir kvikmyndalist og myndlist og verk hennar hafa verið sýnd víðs vegar um heim. Joseph hefur flakkað um heiminn fótgangandi síðastliðinn 10 ár sem hluti af stærri listgjörningi og vitundarvakningu. Síðasta sumar lá leið hans til Íslands. Hann hefur tekið þátt í fjölmörgum listasýningum á ferlinum og m.a. sýnt verk sín á Íslandi.

Borðhaldið var hluti af listrænum gjörningi og tengslamyndarstarfi sendiráðsins í tilefni af listamessunni Paris+ by Art Basel, unnum í samstarfi við kokkinn Marie Chemorin en borðskreytingar og réttir kvöldsins voru innblásin af náttúru Íslands.

  • Kynning á verkum listafólksins Huldu Rósar Guðnadóttur og Joseph Marzolla - mynd úr myndasafni númer 1
  • Kynning á verkum listafólksins Huldu Rósar Guðnadóttur og Joseph Marzolla - mynd úr myndasafni númer 2
  • Kynning á verkum listafólksins Huldu Rósar Guðnadóttur og Joseph Marzolla - mynd úr myndasafni númer 3
  • Kynning á verkum listafólksins Huldu Rósar Guðnadóttur og Joseph Marzolla - mynd úr myndasafni númer 4
  • Kynning á verkum listafólksins Huldu Rósar Guðnadóttur og Joseph Marzolla - mynd úr myndasafni númer 5
  • Kynning á verkum listafólksins Huldu Rósar Guðnadóttur og Joseph Marzolla - mynd úr myndasafni númer 6

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta