Opnun myndlistarsýningar Reinars Foreman í París
Sýning íslenska myndlistarmannsins Reinars Foreman var opnuð í Galerie de Buci í gær í samstarfi við sendiráð Íslands í París.
Sýningin sem ber heitið „Living Gods“ er fyrsta einkasýning listamannsins í Frakklandi en hann hefur áður haldið sýningar í Þýskalandi, Rússlandi og á Íslandi.
Í málverkum sínum vinnur Reinar með túlkun á styttum af persónum klassískrar goðafræði þar sem guðirnir lifna við á á litríkum striga.
Sýningin stendur til 16. maí nk. í Galerie de Buci, 73 rue de Seine í 6. hverfi Parísar.