Hoppa yfir valmynd
14. maí 2024

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis vegna forsetakosninga 1. júní 2024

  - myndHaraldur Jónasson / Hari

Kosning utan kjörfundar erlendis vegna forsetakosninga 1. júní 2024 hefst 2. maí og fer fram skv. ákvæðum 70. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 112/2021.

Kjörstaðir eru allar sendiskrifstofur Íslands (nema Fastanefnd hjá NATO í Brussel), aðalræðisskrifstofur í Winnipeg, Þórshöfn og Nuuk og hjá kjörræðismönnum.

Kjósendum er ráðlagt að hafa samband við sendiskrifstofur og kjörræðismenn og bóka tíma eftir samkomulagi til að kjósa. Á vef utanríkisráðuneytisins má finna upplýsingar um sendiskrifstofur Íslands og kjörræðismenn eftir löndum.

Í sendiráði Íslands í París verður hægt að kjósa alla virka daga frá 9:30-16:30.

Allir íslenskir ríkisborgarar sem hafa átt lögheimili erlendis skemur en 16 ár (talið frá 1. desember árið áður en kosningar eru haldnar) eru sjálfkrafa með kosningarétt á Íslandi. Þeir þurfa að vera orðnir 18 ára á kjördag og hafa einhvern tíma átt lögheimili á Íslandi.

Þeir Íslendingar sem hafa búið erlendis lengur en frá 1. desember 2007 og ekki eru á kjörskrá þurfa að sækja sérstaklega um að þeir verði teknir á kjörskrá fyrir 1. desember árið áður en kosningar eru haldnar. Eyðublað vegna þessa má nálgast á vef Þjóðskrár.

Á Ísland.is er birt upplýsingaefni bæði á íslensku og ensku.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta