Hoppa yfir valmynd
2. júní 2024 Utanríkisráðuneytið

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins hefst í vikunni

Bandarískar F-15 herþotur. - myndLHG

Bandarísk flugsveit er væntanleg til landsins í vikunni, en þá hefst loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins. Flugsveitin samanstendur af fjórum F-15 herþotum og 120 liðsmönnum.

Sveitin tekur þátt í verkefninu ásamt starfsmönnum stjórnstöðva Atlantshafsbandalagsins í Uedem í Þýskalandi og á öruggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.

Framkvæmd verkefnisins verður með sama fyrirkomulagi og undanfarin ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland.

Með fyrirvara um veður er gert ráð fyrir aðflugsæfingum á varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 3. til 17. júní. 

Flugsveitin hefur aðsetur á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli ásamt flugsveitum aðildarríkja Atlangshafsbandalagsins sem sinna kafbátaeftirliti úti fyrir ströndum Íslands. Varnarmálasvið Landhelgisgæslu Íslands annast framkvæmd verkefnisins, í umboði utanríkisráðuneytisins, í samstarfi við Isavia.

Ráðgert er að loftrýmisgæslunni ljúki í síðari hluta júnímánaðar.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum