Hoppa yfir valmynd
21. júní 2024

Þátttaka Íslands á bóksöluhátíðinni Fera del Libro í Madríd

Sendiráð Íslands í París, sem einnig fer með fyrirsvar á Spáni, tók þátt í annað sinn í samstarfi sendiráða Norðurlandanna í Madríd í tengslum við bóksöluhátíðina Feria del Libro sem lauk um síðustu helgi. Hátíðin hefur verið haldin árlega í yfir 80 ár í Retiro garðinum í höfuðborg Spánar og stendur yfir í tvær vikur frá lok maí fram í miðjan júní. Um er að ræða sannkallaða bókaveislu sem er vel sótt af Madrídarbúum á hverju ári.

Norðurlöndin reka sameiginlegan bás á hátíðinni, Casa Nordica, þar sem hægt er að kaupa bækur frá Norðurlöndunum í spænskri þýðingu og fræðast um bókmenntahefðir landanna.

Þó nokkrir íslenskir höfundar hafa verið þýddir á spænsku og bækur þeirra hafa fengið jákvæðar viðtökur.

  • Þátttaka Íslands á bóksöluhátíðinni Fera del Libro í Madríd - mynd úr myndasafni númer 1
  • Þátttaka Íslands á bóksöluhátíðinni Fera del Libro í Madríd - mynd úr myndasafni númer 2
  • Þátttaka Íslands á bóksöluhátíðinni Fera del Libro í Madríd - mynd úr myndasafni númer 3

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta