Hoppa yfir valmynd
19. júlí 2024 Utanríkisráðuneytið

Ísland og Kanada horfa til aukins samstarfs um öryggis- og varnarmál

Frá pallborðsumræðum um öryggis- og varnarmál á Norðurslóðum. - mynd

Aukið samstarf Íslands og Kanada um öryggis- og varnarmál á Norðurslóðum var til umfjöllunar á ráðstefnu (e. Canada-Iceland Seminar: Maritime Defence and Security in the North) sem haldin var nýverið í Ottawa, höfuðborg Kanada. 

Ráðstefnan var haldin í samstarfi sendiráðs Íslands í Ottawa, Alþjóðastofnunar Háskóla Íslands, Mobilizing Insights in Defence and Security (MINDS), Háskólans í Manitoba, sendiráðs Kanada í Reykjavík, Stríðsminjasafns Kanada í Ottawa, North American and Arctic Defence and Security Network (NAADSN), Global Affairs Canada | Affaires mondiales Canada og Alþjóðastofnunnar Háskóla Íslands.

Ráðstefnuna sóttu íslenskir og kanadískir sérfræðingar, þar sem sameiginlegar áskoranir og tækifæri þjóðanna er lúta að öryggis- og varnarmálum á Norðurslóðum voru til umræðu. Í þremur pallborðsumræðum ráðstefnunnar var fjallað um nýjar öryggisáskoranir er varða varnir og öryggi á sjó , ólöglegar fiskveiðar og aukið eftirlit með þeim auk áhrifa loftslagsbreytinga á öryggi. 

Frá Íslandi tóku þátt Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, Garðar Forberg, varnarmálafulltrúi Íslands gagnvart Kanada, Brynhildur Benediktsdóttir, framkvæmdastjóri Northwest Atlantic Fisheries Organization (NAFO), Hlynur Guðjónsson, sendiherra, sendiráði Íslands í Ottawa, Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunnar Háskóla Íslands, Dr. Valur Ingimundarson, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands og Þorlákur Einarsson, meistaranemi frá Háskóla Íslands og sérfræðingur í utanríkisráðuneytinu.

Nánari samantekt um efni málþingsins má nálgast hér.

Ráðstefnan var sú þriðja í röðinni sem samstarfsaðilarnir stóðu fyrir um málaflokkinn, þ.e. til að auka samræðu og samstarf Íslands og Kanada um öryggis- og varnarmál. Fyrsta ráðstefnan var haldin á Íslandi í nóvember 2021. Árið eftir var aftur haldin ráðstefna hérlendis þar sem sérfræðingar skiptust á skoðunum m.a. um áhrif alþjóðastjórnmála á Norðurslóðir. Samantekt af þeirri ráðstefnu má nálgast hér.

  • Hlynur Guðjónsson, sendiherra Íslands í Ottawa, flutti ávarp á ráðstefnunni. - mynd
  • Frá ráðstefnunni, en hana sóttu kanadískir og íslenskir sérfræðingar í málaflokknum. - mynd

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum