Hoppa yfir valmynd
6. september 2024

Afhending trúnaðarbréfs til framkvæmdastjóra Matvælaáætlunar SÞ

Guðmundur Árnason sendiherra og fastafulltrúi Íslands gagnvart stofnunum Sameinuðu þjóðanna í Róm afhenti framkvæmdastjóra Matvælaáætlunar SÞ, (World Food Programme - WFP), Cindy McCain, trúnaðarbréf sitt sl. miðvikudag og átti við það tækifæri fund með henni og fleiri stjórnendum stofnunarinnar. WFP er tilgreind sérstaklega í stefnu íslenskra stjórnvalda um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2024-2028 sem lykilstofnun og samstarfsaðili stjórnvalda á sviði mannúðaraðstoðar. Var sérstakt rammasamkomulag um samstarf milli Íslands og stofnunarinnar undirritað í apríl síðastliðnum.

Verkefni stofnunarinnar eru ærin um þessar mundir enda fæðuöryggi mjög áfátt á fjölmörgum svæðum í heiminum, einkum þar sem átök eiga sér stað líkt og á Gaza og í Úkraínu. Mjög alvarlegur vandi vofir yfir í fleiri löndum, þ.m.t. Súdan, Sómalíu og Jemen, þar sem WFP vinnur að því að tryggja að matvælaaðstoð berist sveltandi og nauðstöddum við afar erfiðar aðstæður.

Fastafulltrúi flutti skilaboð Íslenskra stjórnvalda um áframhaldandi dyggan stuðning við þau brýnu verkefni sem stofnunin sinnir. Fjárhagslegur stuðningur við stofnunina hefur verið aukinn á síðastliðnum árum og Ísland hefur því samhliða lagt áherslu á að vera henni traustur, áreiðanlegur og virkur samstarfsaðili. Samstarf við stofnunina er jafnframt mikilvægt í tengslum við þróunarsamvinnu Íslands í tveimur samstarfslöndum í Afríku, Malaví og Síerra Leóne. þar sem íslensk stjórnvöld styðja við verkefni sem veitir skólabörnum í samstarfshéruðum Íslands næringarríkar máltíðir á skólatíma.

  • Afhending trúnaðarbréfs til framkvæmdastjóra Matvælaáætlunar SÞ - mynd úr myndasafni númer 1

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta