Hoppa yfir valmynd
16. október 2024

Umræður um gervigreind hjá OECD

Sigríður Valgeirsdóttir og Unnur Orradóttir Ramette sóttu fundinn fyrir Íslands hönd - mynd

Fulltrúar 45 ríkja og vinnumarkaðarins tóku þátt í umræðum um gervigreind (AI) hjá Efnahags- og framfarastofnuninni (OECD) í París, í vikunni, undir hatti “Global Strategy Group”, til að ræða framtíðarstefnumörkun ríkja og samstarf þeirra á milli, með öðrum stofnunum, samtökum og atvinnulífinu.

Sigríður Valgeirsdóttir, skrifstofustjóri í háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu tók þátt í umræðum fyrir Íslands hönd og Unnur Orradóttir Ramette, sendiherra, leiddi umræðuhóp um hvernig stjórnvöld geti komið í veg fyrir neikvæð áhrif sem stafað geta af þessari tækni sem er í hraðri þróun (strategic foresight scenario).

Hér má finna frekari upplýsingar um gervigreind hjá hinu opinbera.

  • Umræður um gervigreind hjá OECD - mynd úr myndasafni númer 1
  • Umræður um gervigreind hjá OECD - mynd úr myndasafni númer 2
  • Umræður um gervigreind hjá OECD - mynd úr myndasafni númer 3

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta