Hoppa yfir valmynd
23. október 2024 Utanríkisráðuneytið

Hátíðarhöld í Berlín í tilefni af 25 ára afmæli norrænu sendiráðanna

Hákon krónprins Noregs, Viktoría krónprinsessa Svíþjóðar, Alexander Stubb forseti Finnlands, Friðrik tíundi Danakonungur, Frank-Walter Steinmeier forseti Þýskalands, og Halla Tómasdóttir forseti Íslands. - myndBernhard Ludewig

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, sótti hátíðarhöld í tilefni af 25 ára afmæli norrænu sendiráðanna Í Berlín í vikunni ásamt þjóðhöfðingjum og utanríkisráðherrum Norðurlandanna. 

Frank-Walter Steinmeier, forseti Þýskalands, var heiðursgestur á afmælishátíðinni, en auk hans mættu Friðrik tíundi Danakonungur, Alexander Stubb forseti Finnlands, Hákon krónprins Noregs og Viktoría krónprinsessa Svíþjóðar  til hátíðarhaldanna. Þá tóku norrænu utanríkisráðherrarnir og Annalena Baerbock utanríkisráðherra Þýskalands einnig þátt, auk Joe Chialo menningarmálaráðherra Berlínar, Petru Pau varaforseta þýska sambandsþingsins og Karenar Elleman framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar.

Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins var viðstaddur afmælishátíðina í fjarveru Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra og tók þátt í fundi utanríkisráðherra Norðurlandanna og Þýskalands. Meðal umræðuefna þeirra var árásarstríð Rússlands gegn Úkraínu, öryggisáskoranir í Evrópu og átökin fyrir botni Miðjarðarhafs. 

Náið samstarf Norðurlandanna í Berlín er einstakt á heimsvísu. Sendiráðin eru öll samankomin á einu svæði og deila sameiginlegu viðburðar- og menningarhúsi. Þá varpar afmælið ljósi á hin sterku tengsl Norðurlandanna við Þýskaland á sviðum menningar, viðskipta og mennta og ekki síður á alþjóðavettvangi til að styðja við fjölþjóðlega samvinnu, mannréttindi, lýðræði og frið.

  • Sendiherrar Norðurlandanna ásamt Frank-Walter Steinmeier forseta Þýskalands og eiginkonu hans Elke Büdenbender. - mynd
  • Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, Espen Barth Eide, utanríkisráðherra Noregs, Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, Annalena Baerbock, utanríkisráðherra Þýskalands, Elina Valtonen, utanríkisráðherra Finnlands, og Maria Malmer Stenergard, utanríkisráðherra Svíþjóðar. - mynd
  • Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, ásamt utanríkisráðherrum Norðurlandanna og Þýskalands á fundi með blaðamönnum. - mynd
  • Frank-Walter Steinmeier forseti Þýskalands ávarpar hátíðargesti. - mynd

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta