Hoppa yfir valmynd
25. október 2024

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna alþingiskosninga 2024

Athygli er vakin á því að utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna alþingiskosninganna á Íslandi þann 30. nóvember 2024, hefst í sendiráði Íslands í Vín fimmtudaginn 7. nóvember.

Opnunartímar:

Hægt verður að kjósa í sendiráðinu utan kjörfundar sem hér segir: 

  • Mán., þri. og fim. 13:00-16:00
  • Mið. og fös. 10:00-13:00

Auk þess verður opið: 

  • Lau. 9. nóv. 11:00-14:00
  • Mið. 13. nóv. 10:00-18:00

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hjá kjörræðismönnum:

Hægt verður að kjósa utan kjörfundar hjá kjörræðismönnum Íslands í umdæmislöndum sendiráðsins, eftir tímapöntun. Nánari upplýsingar um kjörræðismenn Íslands í Austurríki og umdæmislöndunum, Króatíu, Slóvakíu, Slóveníu og Ungverjalandi, er að finna á síðu sendiráðsins: Stjórnarráðið | Ungverjaland

Gagnlegar upplýsingar

Kjósendur skulu framvísa persónuskilríkjum með mynd. 

Gagnlegt er fyrir kjósendur að kynna sér upplýsingar um fyrirkomulag kosninga utan kjörfundar á heimasíðu Island.is: Alþingiskosningar 2024 | Ísland.is

Ef kjósendur eru efins um hvort þeir geti kosið (séu á kjörskrá) geta þeir flett upp kennitölu sinni í kjörskrá á síðum Þjóðskrár frá 31. október nk.: Alþingiskosningar 2024 | Þjóðskrá

Hvernig kem ég atkvæði mínu til skila?

Athygli er vakin á því að skv. kosningalögum ber kjósandi sjálfur ábyrgð á því að koma atkvæði sínu á réttan stað. Til að tryggja að atkvæðið nái til viðkomandi kjörstjórnar innan tilskilins tíma, er mælst til þess að kjósendur greiði atkvæði sitt utan kjörfundar í sendiráðum og á kjörræðisskrifstofum erlendis fyrir miðjan nóvember

Hægt er að setja bréfið í póst eða afhenda það einhverjum sem kjósandi felur að koma til skila. Kjörstjóra (þ.m.t sendiráðum) er skylt að koma atkvæðinu í almennan póst ef kjósandi óskar sérstaklega eftir því, en kjörstjóri getur þó ekki trygg að atkvæðið berist í tæka tíð.

Önnur lönd:

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta