Ert þú á kjörskrá í komandi alþingiskosningum?
Kjósendur geta, frá og með 31. október, flett upp hvort og hvar þeir séu á kjörskrá á vef Þjóðskrár. Íslenskur ríkisborgari sem hefur átt lögheimili á Íslandi hefur kosningarrétt í 16 ár frá því að hann flytur lögheimili af landinu. Eftir þann tíma þarf hann að sækja um að vera settur aftur á kjörskrá til Þjóðskrár Íslands. Ef umsækjandi uppfyllir skilyrðin verður hann skráður á kjörskrá til næstu fjögurra ára á eftir. Ef ekki var sótt um fyrir 1. desember síðastliðinn geta þeir sem hafa haft lögheimili erlendis, lengur en 16 ár, ekki kosið í alþingiskosningunum.
Á Ísland.is eru upplýsingar um alþingiskosningarnar, bæði á íslensku og ensku.