Hoppa yfir valmynd
4. nóvember 2024 Utanríkisráðuneytið

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla á Spáni

Utanríkisráðuneytið stendur fyrir sérstökum utankjörfundaratkvæðagreiðslum á tveimur stöðum á Spáni fyrir komandi Alþingiskosningar. Kjörfundirnir verða á Torrevieja og Tenerife, en töluverður fjöldi Íslendinga dvelst þar hverju sinni í styttri eða lengri tíma. Með þessu vill utanríkisráðuneytið auka þjónustu við íslenska ríkisborgara á svæðinu. 

Á Tenerife verður kosið dagana 17. og 18. nóvember nk. og í Torrevieja verða haldnar utankjörfundaratkvæðagreiðslur á tímabilinu 20. – 22. nóvember nk. Nánari staðsetningar og tímasetningar fyrir báða staðina verða auglýstar síðar á Íslendingasíðum á Facebook

Utanríkisráðuneytið flytur utankjörfundaratkvæði til Íslands 

Utanrikisráðuneytið býður þátttakendum í ofangreindum utankjörfundaratkvæðagreiðslum að flytja atkvæði þeirra til Landskjörstjórnar á Íslandi. Athygli er vakin á því að kjósendur bera sjálfir ábyrgð á að koma atkvæðum sínum til Íslands kjósi þeir utan auglýstra kjörfunda.

Þá verður einnig hægt að sækja um vegabréf og/eða nafnskírteini sem ferðaskilríki á sama tíma, en bóka þarf slíkt í tíma. Hins vegar ef eingöngu á að kjósa, er nóg að mæta á kjörfund með viðurkennd skilríki. 

Kjósendum er jafnframt bent á að kanna fyrirfram hvort og hvar þeir séu á kjörskrá á vef Þjóðskrár.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta