Hoppa yfir valmynd
6. nóvember 2024

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla í Svíþjóð vegna alþingiskosninga

Íslenski fáninn blaktir við hún - mynd

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla í Svíþjóð vegna alþingiskosninga 30. nóvember 2024 hefst þann 7. nóvember.

Sendiráðið vekur sérstaka athygli á eftirfarandi:

  • Það er á ábyrgð kjósanda að sjá til þess að atkvæðið berist til kjörstjórnar, þar sem viðkomandi er skráður á kjörskrá, í tæka tíð. Það er til dæmis hægt að gera með því að senda atkvæðið með pósti eða með því að fela öðrum að koma því til skila.
  • Sendiráðið hvetur kjósendur til að gera ráð fyrir hugsanlegum töfum á póstsendingum og senda atkvæði sín tímanlega. Samkvæmt upplýsingum frá Postnord tekur sending almennra bréfa frá Svíþjóð til Íslands að lágmarki 3 til 5 daga og telst sendingardagur þá ekki með.
  • Kjósendur verða beðnir að gera grein fyrir sér, t.d. með framvísun íslensks skilríkis með kennitölu eða með öðrum hætti sem kjörstjóri metur fullnægjandi.
  • Kjósendur geta kannað hvort og hvar þeir eru á kjörskrá með því að fletta upp kennitölu sinni á heimasíðu Þjóðskrár.

 

Fyrirkomulag verður með eftirfarandi hætti:

Stokkhólmur

Tekið verður á móti kjósendum í sendiráðinu í Stokkhólmi alla virka daga frá klukkan 9:30 til 15:30. Ekki þarf að bóka tíma eða boða komu.

Sérstakur aukaopnunartími verður í sendiráðinu á eftirfarandi dögum:

  • Laugardaginn 16. nóvember - frá klukkan 12:00 – 16:00.
  • Vikan 18.– 22. nóvember: Framlengdur opnunartími til kl. 18:00.
  • Laugardaginn 23. nóvember - frá klukkan 12:00 – 16:00.

Sendiráðið er staðsett að Kommendörsgatan 35, 114 58 Stokkhólmi, sími +46 8 442 8300.

 

Gautaborg

Kjörræðismaður Íslands í Gautaborg tekur á móti kjósendum í safnaðarheimilinu við Västra Frölunda kirkju á Frölunda Kyrkogata 2, Gautaborg á eftirfarandi tímum:

  • Laugardaginn 16. nóvember frá klukkan 11:00-14:00.
  • Þriðjudaginn 19. nóvember frá klukkan 16:00 til 19:00.
  • Fimmtudaginn 21. nóvember frá klukkan 16:30 – 19:30.

Hægt er að hafa samband við Christinu Nilroth, aðalræðismann Íslands í Gautaborg, í síma +46 70 570 40 58 eða með tölvupósti; [email protected].

 

Malmö/Lund

Kjörræðismaður Íslands í Malmö/Höllviken hefur nýverið látið af störfum. Vinnu við skipun nýs kjörræðismanns verður ekki lokið fyrir kosningar og því verður ekki hægt að kjósa hjá ræðismanni í Malmö fyrir alþingiskosningar þann 30. nóvember 2024.

Vegna þessa mun fulltrúi sendiráðsins í Stokkhólmi taka á móti kjósendum í Malmö og Lund (einn dag í hvorri borg) skv. eftirfarandi:

  • Malmö - Miðvikudaginn 20. nóvember kl. 11:00 til 18:00   
    Staðsetning: Spaces Epic, Nordenskiöldsgatan 11 A, Malmö  (sjá kort hér).

  • Lund - Fimmtudaginn 21. nóvember kl. 12:30 til 17:00
    Staðsetning: Vänskapens hus, Bredgatan 19, Lund (sjá kort hér)

Ekki þarf að boða komu sína fyrir fram.

Þeir sem ekki geta kosið á umræddum dögum hafa kost á að kjósa í sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn

 

Karlstad/Hammarö

Tekið verður á móti kjósendum eftir samkomulagi á Bärstavägen 22, Hammarö á tímabilinu 13.-20. nóvember. Hafa skal samband við kjörræðismann til að bóka tíma:

Madeleine Ströje Wilkens, ræðismaður Íslands í Karlstad/Hammarö

Sími: +46 73 59 000 44

Tölvupóstur: [email protected]

 

Nánari upplýsingar um utankjörfundaratkvæðagreiðslu má nálgast hér en einnig má hafa samband við sendiráðið ef spurningar vakna í síma +46 8 442 8300 eða með því að senda tölvupóst á [email protected].

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta