Hoppa yfir valmynd
7. nóvember 2024

30 ára afmæli samstarfs Portúgals við EES-ríkin á vettvangi Uppbyggingasjóðs EES

Portúgal er eitt af sex umdæmislöndum sendiráðsins í París og það er þannig eitt af hlutverkum sendiráðsins að gæta hagsmuna Íslands í Portúgal og veita Íslendingum á svæðinu þjónustu.  Sendiráðið tekur m.a. þátt í vinnu í tengslum við samstarf Íslands, Noregs og Liechtenstein við Portúgal undir hatti Uppbyggingasjóðs EES. Í lok október var haldið upp á 30 ára afmæli samstarfs Portúgals við EES-ríkin á vettvangi sjóðsins og boðað til stórrar ráðstefnu þar sem litið var yfir farinn veg, fjallað um þau samstarfsverkefni sem litið hafa dagsins ljós á þessu tímabili og horft til framtíðar. Varamaður sendiherra Íslands í París, Una Jóhannsdóttir, tók þátt í pallborðsumræðum um mikilvægi uppbyggingasjóðsins fyrir tvíhliða samstarf ríkjanna og Evrópusamstarf, ásamt Mariu Varteressian aðstoðarráðherra í utanríkisráðuneyti Noregs og Maríu Mineiro framkvæmdastýru sjóðsins í Portúgal.

Uppbyggingasjóðurinn gegnir lykilhlutverki í tvíhliða samskiptum Íslands og Portúgal og hafa verkefni fjármögnuð af sjóðnum aukið samstarf ríkjanna m.a. á sviði grænnar orku, jafnréttis, umhverfismála og bláa hagkerfisins.  Ársfundur EES-ríkjanna og Portúgal vegna samstarfs á vettvangi uppbyggingasjóðsins var haldinn í kjölfar ráðstefnunnar en nú eru að hefjast viðræður um fjármögnun fyrir næsta tímabil. 

  • 30 ára afmæli samstarfs Portúgals við EES-ríkin á vettvangi Uppbyggingasjóðs EES - mynd úr myndasafni númer 1
  • 30 ára afmæli samstarfs Portúgals við EES-ríkin á vettvangi Uppbyggingasjóðs EES - mynd úr myndasafni númer 2
  • 30 ára afmæli samstarfs Portúgals við EES-ríkin á vettvangi Uppbyggingasjóðs EES - mynd úr myndasafni númer 3
  • 30 ára afmæli samstarfs Portúgals við EES-ríkin á vettvangi Uppbyggingasjóðs EES - mynd úr myndasafni númer 4
  • 30 ára afmæli samstarfs Portúgals við EES-ríkin á vettvangi Uppbyggingasjóðs EES - mynd úr myndasafni númer 5
  • 30 ára afmæli samstarfs Portúgals við EES-ríkin á vettvangi Uppbyggingasjóðs EES - mynd úr myndasafni númer 6

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta