Hoppa yfir valmynd
8. nóvember 2024

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla í Tókýó vegna alþingiskosninga

Kosið verður til alþingis 30. nóvember 2024. Ef kjósendur geta ekki kosið á Íslandi á kjördag er hægt að kjósa utan kjörfundar.

Frá og með 8. nóvember er hægt að kjósa utan kjörfundar hjá sendiráði Íslands í Tókýó og hjá ræðismönnum Íslands í Jakarta, Kyoto, Manila, Seoul og Singapúr.

Kjósendur þurfa að hafa samband með tölvupósti við sendiráðið eða ræðismann í viðkomandi landi til að bóka tíma til að kjósa. Sýna þarf skilríki, til dæmis ökuskírteini eða vegabréf, þegar kosið er.

Kjósandi ber ábyrgð á að koma atkvæðinu sínu á réttan stað. Hægt er að setja bréfið í póst, eða afhenda það einhverjum sem kjósandi felur að koma því til skila.

Vakin er athygli á því að það tekur að jafnaði um tvær vikur fyrir bréf sem póstlagt er frá Japan að skila sér til Íslands. Kjósendur sem hyggjast greiða atkvæði utan kjörfundar í Tókýó eru því hvattir til að gera það fyrri hluta nóvember.

Sjá nánari upplýsingar um framkvæmd kosningar utan kjörfundar á vef utanríkisráðuneytisins og á island.is.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta