Þorgerður Katrín ræddi við utanríkisráðherra Úkraínu
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra átti í dag símafund með Andrii Sybiha, utanríkisráðherra Úkraínu. Er það fyrsta símtalið sem ráðherra tekur við erlendan samstarfsmann sinn.
Í símtalinu ítrekaði Þorgerður Katrín stuðning Íslands við Úkraínu í varnarbaráttunni gegn árásarstríði Rússa sem staðið hefur yfir í að verða þrjú ár. Þau ræddu stöðuna í Úkraínu og ekki síst þær miklu áskoranir sem árásir Rússa á orkuinnviði hafa í för með sér yfir köldustu mánuðina. Þá ræddu þau samstarf landanna á alþjóðavettvangi, framkvæmd bæði Úkraínustefnu Íslands sem samþykkt var á Alþingi síðastliðið vor og tvíhliða samnings landanna um stuðning.
„Úkraínska þjóðin hefur sýnt ótrúlegt hugrekki og þrautseigju í varnarbaráttu sinni gegn innrásarliði Rússa og nauðsynlegt er að styðja þau með öllum tiltækum ráðum. Grimmdarleg framganga Rússlands hefur valdið úkraínsku þjóðinni gríðarlegum hörmungum og er um leið stærsta ógnin við öryggi Evrópu, þar með talið Íslands. Sem lýðræðisríki eigum við tilvist okkar undir virðingu fyrir alþjóðalögum og fullveldisrétti ríkja til að taka ákvarðanir um eigin örlög. Ísland getur því með engu móti staðið aðgerðarlaust hjá,“ segir Þorgerður Katrín. „Við stöndum með úkraínsku þjóðinni, svo einfalt og skýrt er það.“