Hoppa yfir valmynd
28. janúar 2025 Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðherra fundar með ráðamönnum í Póllandi

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Ignacy Niemczycki, aðstoðarráðherra Evrópumála í forsætisráðuneyti Póllands. - mynd

Staða alþjóðamála, aukið Evrópusamstarf á sviði öryggis- og varnarmála, mikilvægi innri markaðarins, og góð tvíhliða samskipti voru helstu umræðuefnin á fundum Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra með Radoslaw Sikorski, utanríkisráðherra Póllands, og Ignacy Niemczycki, aðstoðarráðherra Evrópumála í forsætisráðuneyti Póllands, sem fram fóru í Varsjá í dag.

„Það var gott að koma til Varsjár og finna það vinarþel sem ríkir í Íslands garð. Fundirnir með ráðherrunum undirstrikuðu mikilvægi okkar tvíhliða samskipta og það nána samstarf sem ríkin eiga á alþjóðavettvangi og innan Atlantshafsbandalagsins. Formennska Póllands í Evrópusambandinu gefur okkur auk þess enn frekar tækifæri til að stilla saman strengi varðandi innri markaðinn og EES-samstarfið. Þá gegnir Pólland lykilhlutverki í stuðningi við Úkraínu,“ segir Þorgerður Katrín.

Mikilvægi góðra samskipta yfir Atlantshafið voru sömuleiðis rædd og formennska Póllands í ráðherraráði Evrópusambandsins sem hófst í byrjun þessa árs.  

Þá ræddu ráðherrarnir um mikilvægi áframhaldandi samstöðu með Úkraínu, varnartengdan stuðning, efnahags- og mannúðarstuðning, og áframhaldandi þvingunaraðgerðir gagnvart Rússlandi sem Ísland tekur fullan þátt í.

  • Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Radoslaw Sikorski, utanríkisráðherra Póllands. - mynd

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta