Hoppa yfir valmynd
3. febrúar 2025 Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Fyrstu verk nýrrar ríkisstjórnar

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra, Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra, kynna fyrstu verk nýrrar ríkisstjórnar - mynd

Formenn stjórnarflokkanna, Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra, kynntu í dag fyrstu verk nýrrar ríkisstjórnar. Á fréttamannafundi í forsætisráðuneytinu sögðu þær frá þingmálaskrá fyrir vorþingið og ýmsum frumvörpum, reglugerðarbreytingum og öðrum aðgerðum sem stjórnin hyggst ráðast í á fyrstu 100 dögum stjórnarsamstarfsins.

„Það er full eining í þessari ríkisstjórn um öll þau mál sem birtast í þingmálaskrá fyrir vorþingið, sem er mikil breyting frá því hefur tíðkast á síðustu árum,“ segir Kristrún af þessu tilefni. „Við höfum lagt upp nýtt verklag og ég hef meðal annars fundað einslega með hverjum einasta ráðherra til að setja fram sterka þingmálaskrá sem er trúverðug. Í því felast skýr skilaboð frá samstíga ríkisstjórn.“

Aðgerðir til að ná stöðugleika og lækkun vaxta

„Við ætlum að styðja við lækkun vaxta og ráðast í bráðaaðgerðir í húsnæðismálum,“ segir Kristrún og nefnir því til stuðnings frumvarp fjármálaráðherra um stöðugleikareglu sem verður á dagskrá strax í febrúar og er ætlað að tryggja að fjármál ríkisins styðji við lægri vexti. Gert er ráð fyrir takmörkuðum útgjöldum í fjáraukalögum og engin ný útgjöld boðuð á árinu 2025 án þess að hagræða á móti eða afla aukinna tekna. Hagræðingarhópur ríkisstjórnarinnar mun skila tillögum til hagræðingar þann 28. febrúar næstkomandi.

Þá boðar ríkisstjórnin bráðaaðgerðir í húsnæðismálum sem birtast meðal annars í þingmálaskrá. Þar ber að nefna aðgerðir til að taka stjórn á Airbnb og annarri skammtímaleigu til ferðamanna, tryggja skilvirka framkvæmd á veitingu hlutdeildarlána, lækka fjármögnunarkostnað hjá húsnæðisfélögum án hagnaðarsjónarmiða, liðka fyrir uppbyggingu einingahúsa með reglugerðarbreytingum og leiða í lög skráningarskyldu leigusamninga til að fá áreiðanlega mynd af þróun leigumarkaðar.

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra

Afmarkaðar aðgerðir í velferðarmálum árið 2025

„Við ætlum að fara í afmarkaðar aðgerðir í velferðarmálum árið 2025 sem skipta miklu máli en kosta lítið og koma hratt til framkvæmda,“ segir Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra. Þar má til dæmis nefna að ríkisstjórnin hyggst sjá til þess að meðferðarúrræðum verði ekki lokað í sumar. Þá verða kjör öryrkja og eldra fólks bætt. Lagt verður fram frumvarp um að aldursviðbót örorkulífeyris haldist ævilangt en falli ekki niður þegar öryrki verður 67 ára, jólaeingreiðsla verður greidd til öryrkja og eldra fólks með lágar tekjur, stöðu hagsmunafulltrúa eldra fólks verður komið á og loks stendur til að samþykkja á vorþingi lagafrumvarp til að stöðva kjaragliðnun launa og lífeyris.

Fyrstu breytingar á fæðingarorlofskerfinu birtast í frumvarpi í mars til að bæta hag fjölburaforeldra og lengja fæðingarorlof foreldra sem veikjast á meðgöngu eða eftir fæðingu. Að auki á að tryggja að hækkanir í fæðingarorlofskerfinu gangi til allra foreldra í fæðingarorlofi – óháð fæðingardegi barns – og fæðingarstyrkir námsmanna og fólks utan vinnumarkaðar hækka um 30 þúsund krónur á mánuði.

„Og síðast en ekki síst risastórt velferðar- og mannréttindamál sem ríkisstjórnin leggur fram í mars: Við ætlum að löggilda samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks,“ segir Inga.

Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra

Aukin verðmætasköpun og réttlát auðlindanýting

„Við ætlum að höggva á hnútinn í orkumálum og gera breytingar í sjávarútvegi sem auka gagnsæi og réttlæti í greininni. Neytendamálin verða líka ofarlega á blaði,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Ríkisstjórnin hyggst leggja fram að minnsta kosti fjögur stór mál á vorþingi sem snúa að orkuöflun. Eitt þeirra er frumvarp strax á fyrstu dögum þingsins til að eyða óvissu um Hvammsvirkjun og aðrar mikilvægar framkvæmdir. Orkuforgangur almennings verður á dagskrá ásamt umfangsmiklu einföldunarfrumvarpi til að hraða og samræma málsmeðferð í leyfisveitingum, án þess að slá af kröfum um umhverfisvernd og almannasamráð. Þá verður lögð fram rammaáætlun þar sem virkjunarkostir verða flokkaðir í verndarflokk eða nýtingarflokk samkvæmt tillögum verkefnastjórnar rammaáætlunar.

Stór verkefni í sjávarútvegsmálum verða tekin fyrir á Alþingi, meðal annars frumvarp í febrúar sem snýr að gagnsæi og eignarhaldi tengdra aðila á útgerðarfyrirtækjum, frumvarp um strandveiðar og breytingar á veiðigjaldi til að það endurspegli betur raunveruleg aflaverðmæti. Þá verður undið ofan af breytingum á búvörulögum sem hafa verið dæmdar ólöglegar í héraðsdómi. Gerðir verða nýir fríverslunarsamningar við Indland, Taíland og Síle og samningur við Úkraínu uppfærður. Einnig er vert að nefna að ríkisstjórnin hyggst ljúka við bókun 35 í vor.

Stefnt er að því að nokkur stór auðlinda- og atvinnumál verði lögð fram á haustþingi, sem kalla í einhverjum tilfellum á meiri vinnu í ráðuneytum eða samráð við fólk og fyrirtæki. Til dæmis má þar nefna lagafrumvarp um lagareldi þar sem gert er ráð fyrir tímabundnum rekstrarleyfum, afnám á undanþágum frá skattlagningu orkumannvirkja, jöfnun á dreifikostnaði raforku, ný heildarlög um loftslagsmál og síðast en ekki síst nýja samgönguáætlun.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra

Önnur mikilvæg stjórnarmál sem stefnt er á að klára í vor

„Við ætlum að ganga í verkin og klára ýmis mál sem hafa verið stopp alltof lengi,“ segir Þorgerður. Á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar eru 114 þingmál og því er af nógu að taka. Fækkun ráðuneyta verður lögð fyrir Alþingi og gert er ráð fyrir að hagræðing af því nemi u.þ.b. 350 milljónum á ári. Ljúka á við sölu Íslandsbanka með gagnsæju og traustu ferli þar sem almenningur hefur forgang. Menntamál verða áberandi og þar eru til dæmis boðuð frumvörp um nýtt fyrirkomulag við námsmat grunnskóla, um fjölbreytt framboð á námsgögnum í leik-, grunn- og framhaldsskólum, sem verði gerð gjaldfrjáls í áföngum, og um breytingar á Menntasjóði námsmanna sem snúa meðal annars að því að 20% lána breytist í styrk í lok hverrar annar en 10% við námslok.

Með breytingum á lögum um sviðslistir stendur til að bæta umgjörð og koma rekstri óperustarfsemi fyrir innan Þjóðleikhússins. Vinna er hafin við endurskoðun á styrkjum til einkarekinna fjölmiðla og verður þak á styrkjum til fjölmiðla lækkað strax í vor en styrkirnir framlengdir til eins árs. Nefna má frumvarp um sorgarleyfi fyrir foreldra sem missa maka og frumvarp og um lágmarksskatt á fjölþjóðleg stórfyrirtæki. Ríkisstjórnin hyggst ljúka við heildarendurskoðun á lögum um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga og farið verður í fyrsta lið í endurskoðun á lögum um leigubíla sem snýr meðal annars að því að koma aftur á stöðvarskyldu.

Stefnt er að því að sameina sýslumannsembætti úr níu í eitt án þess að það komi niður á þjónustu á landsbyggðunum. Lögreglumönnum verður fjölgað um 50 strax á þessu ári. Dómsmálaráðherra mun leggja fram frumvarp strax í febrúar sem gerir lögreglu kleift að krefjast farþegaupplýsinga og þá á að gera það heimilt að afturkalla alþjóðlega vernd fyrir einstaklinga sem fremja alvarleg afbrot eða síendurtekin.

Loks er stefnt á ýmsar umbætur í heilbrigðismálum, fyrir utan sumaropnun meðferðarúrræða. Þar má nefna reglugerðarbreytingar til að draga úr skriffinnsku og vottorðafargani, skyldu til að halda rafrænar sjúkraskrár svo hægt sé að samnýta upplýsingar og breytingar á lögum um neyslurými.

Áhersla ríkisstjórnarinnar á heilbrigðismál mun einnig birtast í fyrstu fjárlögum á haustþingi.

Þingmálaskrá 156. löggjafarþings

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta