Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum erlendis – auglýsing 1. janúar 2025
30.12.2024Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu ferðakostnaðar ríkisstarfsmanna á...
Málefni ríkisstarfsmanna heyra undir fjármála- og efnahagsráðuneytið eins og kveðið er á um í lögum og forsetaúrskurði um Stjórnarráðið. Er þar átt við launa-, kjara- og lífeyrismál, réttindi og skyldur. Fjármála- og efnahagsráðherra annast einnig gerð kjarasamninga við starfsmenn ríkisins skv. lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna.
Hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu fara Kjara- og mannauðssýsla og skrifstofa stjórnunar og umbóta með stefnumörkun varðandi mannauðsmál ríkisins.
Kjara- og mannauðssýsla ríkisins (KMR) er í forsvari við gerð kjarasamninga með samninganefnd ríkisins. KMR veitir einnig stofnunum ráðgjöf og leiðbeiningar varðandi túlkun og framkvæmd kjarasamninga sem og meginreglur vinnuréttarins. KMR sinnir einnig tölfræði mannauðsmála ríkisins í samvinnu við Fjársýsluna.
Forstöðumenn stofnana ríkisins fara með framkvæmd starfsmannamála innan sinnar stofnunar. Almennt eru ákvarðanir þeirra í starfsmannamálum endanlegar og verður hvorki skotið til hlutaðeigandi fagráðuneytis né fjármála- og efnahagsráðuneytis. Stéttarfélög opinberra starfsmanna aðstoða félagsmenn sína sem eru starfsmenn ríkisins við túlkun kjarasamninga.
Launaafgreiðsla og samskipti við stéttarfélög í samstarfsnefndum s.s. röðun starfa, að því marki sem stofnanir sinna því ekki sjálfar, er í höndum Fjársýslunnar.

Sjá upplýsingar fyrir stjórnendur og mannauðsfólk hjá ríkinu á mannauðstorgi á Ísland.is.
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu ferðakostnaðar ríkisstarfsmanna á...
Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið
Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið hefur fært til bókar verklag sitt með útgáfu á ritinu...
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.