Táknmálsgrein
Heilbrigðisþjónusta er eitt af meginverkefnum velferðarráðuneytisins. Í lögum um heilbrigðisþjónustu er kveðið á um grunnskipulag heilbrigðisþjónustunnar í landinu. Markmið laganna er að allir landsmenn eigi kost á fullkomnustu heilbrigðisþjónustu sem á hverjum tíma eru tök á að veita til verndar andlegu, líkamlegu og félagslegu heilbrigði.
Heilbrigðisþjónusta skal veitt á viðeigandi þjónustustigi og heilsugæslan skal að jafnaði vera fyrsti viðkomustaður sjúklinga. Landinu er skipt upp í heilbrigðisumdæmi. Í hverju heilbrigðisumdæmi er starfrækt heilbrigðisstofnun sem veitir almenna heilbrigðisþjónustu í umdæminu.
Embætti landlæknis hefur það markmið að tryggja gæði heilbrigðisþjónustu og stuðla að heilbrigði landsmanna. Landlæknir skal hafa eftirlit með heilbrigðisþjónustu í landinu, vinna að gæðaþróun innan heilbrigðisþjónustu, safna og vinna upplýsingar um heilsufar og heilbrigðisþjónustu og sinna kvörtunum almennings vegna heilbrigðisþjónustunnar.
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.