Samráðsvettvangur: Hagvaxtartillögur verkefnisstjórnar
Á 3. fundi Samráðsvettvangs um aukna hagsæld, sem haldinn var 8. maí sl, voru lagðar fram og kynntar tillögur sjálfstæðrar verkefnisstjórnar varðandi hagvaxtarmarkmið, opinbera þjónustu, innlenda þjónustu, auðlindageira og alþjóðageira. Tillögurnar í heild má nálgast á vef forsætisráðuneytisins og á vef Samráðsvettvangsins. 60 til 70 sérfræðingar hafa komið að gerð tillagnanna með einum eða öðrum hætti.
Tillögurnar verða teknar til ítarlegrar umræðu á næsta fundi Samráðsvettvangsins 22. maí nk. en fyrirliggjandi verkáætlun gerir ráð fyrir því að Samráðsvettvangurinn skili endanlegum tillögum til forsætisráðherra í september næstkomandi.
Nánari upplýsingar um tilurð Samráðsvettvangsins er einnig að finna á vef forsætisráðuneytisins.