Um þungunarrof og frumvarp að nýrri löggjöf
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að leggja frumvarp til laga um þungunarrof fyrir Alþingi með rýmri heimildum varðandi tímamörk en miðað var við í drögum að frumvarpinu sem birt voru í samráðsgátt stjórnvalda. Ráðherra leggur áherslu á að í nýrri löggjöf verði jafnræðis gætt og farið að samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Í gildandi lögum er notað hugtakið fóstureyðing en ekki þungunarrof. Lögin kveða á um að heimild til fóstureyðingar verði að grundvallast á læknisfræðilegum eða félagslegum ástæðum, eða þegar þungun er afleiðing refsiverðrar háttsemi. Við þessar aðstæður er fóstureyðing heimil til loka 16. viku meðgöngu. Auk þessa er í gildandi lögum kveðið á um heimild til fóstureyðingar eftir 16 vikur, „séu miklar líkur á vansköpun, erfðagöllum eða sköddun fósturs“.
Í þeim drögum að frumvarpi sem nýlega voru birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda var gert ráð fyrir að heimilt yrði að framkvæma þungunarrof að ósk konu, óháð ástæðum að baki þeim vilja, fram að 18. viku. Einnig var í drögunum gert ráð fyrir takmörkuðum heimildum fyrir þungunarrofi eftir lok 18. viku ef lífi konu væri stefnt í hættu með áframhaldandi þungun eða ef fóstur teldist ekki lífvænlegt til frambúðar.
Við vinnslu frumvarpsins hefur verið lögð áhersla á að ákvæði þess gangi ekki gegn réttindum og markmiðum samings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Eftirlitsnefnd samnings Sameinuðu þjóðanna hefur gert athugasemdir við löggjöf ríkja þar sem veittar eru heimildir til að framkvæma þungunarrof á öllum stigum meðgöngu þegar fóstur er talið alvarlega fatlað. Þetta er raunin í íslenskri löggjöf þar sem sérstaklega er kveðið á um heimild til fóstureyðingar eftir 16 vikur „séu miklar líkur á vansköpun, erfðagöllum eða sköddun fósturs“ eins og það er orðað í lögunum. Þetta orðalag stríðir jafnframt gegn 8. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks um vitundarvakningu sem skuldbindur ríki til að vinna á móti staðalímyndum og fordómum sem tengjast fötluðu fólki.
Í frumvarpi heilbrigðisráðherra er réttur kvenna til sjálfsforræðis og ákvarðanatöku byggðri á óhlutdrægri fræðslu og ráðgjöf hafður að leiðarljósi og sömuleiðis virðing fyrir mannréttindum og mannlegri reisn.
Breytt tímamörk í frumvarpi ráðherra
Í kjölfar umsagna og athugasemda við drög að frumvarpi um þungunarrof hefur heilbrigðisráðherra ákveðið að leggja frumvarp sitt fyrir Alþingi þar sem viðmið heimildar til þungunarrofs verða við lok 22. viku. Gildir þá einu hvaða ástæður liggja að baki ef vilji hlutaðeigandi konu er skýr. Í frumvarpinu verður, líkt og í gildandi lögum, lögð áhersla á að þegar þungunarrofs er óskað skuli það ætíð framkvæmt eins fljótt og auðið er og helst fyrir lok 12. viku.