Hoppa yfir valmynd

Frétt

24. júní 2024 Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Fyrstu alþjóðlegu jafnréttisverðlaunin til heiðurs Vigdísi Finnbogadóttur afhent í dag

Frá verðlaunaafhendingunni í Strassborg í dag. - myndEvrópuráðsþingið

Grísku grasrótarsamtökin Irida Women‘s Center hlutu í dag ný alþjóðleg jafnréttisverðlun í nafni Vigdísar Finnbogadóttur, Vigdís Prize for Women‘s Empowerment, sem afhent voru í fyrsta sinn á vettvangi Evrópuráðsins að viðstöddum Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, og Guðmundi Inga Guðbrandssyni, félags- og vinnumarkaðsráðherra. 

Irida Women‘s Center samtökin vinna gegn fátækt og félagslegri einangrun kvenna og gegn kynbundnu ofbeldi. Samtökin sem voru stofnuð 2016, þegar straumur flóttafólks leitaði til Grikklands, bjóða upp á neyðaraðstoð og veita konum og börnum öruggt skjól.

Vigdísarverðlaunin voru stofnsett í tengslum við formennsku Íslands í Evrópuráðinu og í aðdraganda leiðtogafundar ráðsins sem haldinn var í Reykjavík í maí 2023. Evrópuráðsþingið og ríkisstjórn Íslands standa að verðlaununum sem ætlað er að vekja athygli á einstaklingum, stofnunum eða samtökum sem stuðlað hafa að valdeflingu kvenna með framúrskarandi hætti, hvort sem um er að ræða aðgerðir sem stuðla að jafnrétti kynjanna, jafnari samfélagslegri þátttöku kvenna eða aðgerðir sem vekja athygli á ójafnri stöðu kvenna og hvetja til úrbóta.

Nýju alþjóðlegu jafnréttisverðlaunin hafa þegar hlotið verðskuldaða athygli víða en þau verða veitt árlega í júní-lotu Evrópuráðsþingsins í Strassborg. Alls bárust 123 tilnefningar til verðlaunanna frá öllum heimshlutum en þrír hlutu tilnefningu í byrjun maí. Auk Irida Women‘s Center fengu pólsku samtökin Feminoteka Foundation og Pascuala López López, sem er baráttukona fyrir mannréttindum í Mexíkó, sérstaka viðurkenningu.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, afhenti Evrópuráðinu verðlaunagripinn Kviku eftir listakonuna Brynhildi Þorgeirsdóttur við hátíðlega athöfn í morgun. Listaverkið er úr gleri og með tilvísun í íslenska náttúru og tungu.

„Það var mér mikill heiður að flytja ávarp við afhendingu fyrstu alþjóðlegu jafnréttisverðlauna Vigdísar Finnbogadóttur. Ég fékk í ávarpi mínu tækifæri til þess að undirstrika framlag Vigdísar og áhrif hennar, jafnt innan íslensks samfélags sem utan, eins og greina mátti við fjölsótta athöfn í Strassborg í dag sem fólk hvaðanæva að sótti,“ segir Guðmundur Ingi.

„Á fundum sem ég átti jafnframt með fulltrúum Evrópuráðsins í dag kom fram að framganga Íslands á sviði jafnréttismála, og að því er varðar málefni hinsegin fólks, vekur enn verðskuldaða athygli og óskað er eftir frekari samstarfi við okkur á þeim sviðum,“ en Guðmundur Ingi átti fundi með aðalframkvæmdastjóra Evrópuráðsins, forseta Evrópuráðsþingsins og sérfræðingum Evrópuráðsins á sviði jafnréttis- og félagsmála.

Ávarp Guðmundar Inga Guðbrandssonar, félags- og vinnumarkaðsráðherra, við verðlaunaafhendinguna 

  • Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, afhendir Evrópuráðinu verðlaunagripinn. Marija Buric, framkvæmdastjóri Evrópuráðsins, er með honum á myndinni.  - mynd
  • Frá vinstri: Bjarni Jónsson, formaður Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, Marija Buric, framkvæmdastjóri Evrópuráðsins, Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, Theodoros Rousopoulos, forseti Evrópuráðsþingsins, Despina Chatzivassiliou-Tsovilis, framkvæmdastjóri Evrópuráðsþingsins, og Ragnhildur Arnljótsdóttir, sendiherra og fastafulltrúi Íslands hjá Evrópuráðinu. - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum