Hoppa yfir valmynd

Frétt

2. desember 2024 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Opnað fyrir tilnefningar til jafnréttisverðlauna í nafni Vigdísar Finnbogadóttur

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til jafnréttisverðlauna í nafni Vigdísar Finnbogadóttur. Til verðlaunanna var stofnað í Reykjavík í maí 2023 í aðdraganda leiðtogafundar Evrópuráðsins.

Að verðlaununum standa ríkisstjórn Íslands og Evrópuráðsþingið. Verðlaununum er ætlað að verðlauna einstakling eða samtök sem stuðla að eða styðja með framúrskarandi hætti við valdeflingu kvenna; hvort sem um er að ræða aðgerðir sem stuðla að jafnrétti kynjanna, jafnari samfélagslegri þátttöku kvenna eða aðgerðir sem vekja athygli á ójafnri stöðu kvenna og hvetja til úrbóta.

Verðlaunin eru nefnd í höfuðið á frú Vigdísi Finnbogadóttur, fyrstu konunni sem var kjörin þjóðarleiðtogi í heiminum. Verðlaunaféð er 60.000 evrur og verða verðlaunin afhent í annað sinn í júní á næsta ári í Strassborg í Frakklandi. Í fyrra hlutu grísku grasrótarsamtökin Irida Women‘s Center verðlaunin að viðstöddum forseta Íslands, félags- og vinnumarkaðsráðherra, fulltrúum Evrópuráðsþingsins o.fl. 

Frestur til að skila inn tilnefningum er til 28. mars 2025 á netfangið [email protected] og notast skal við sérstakt eyðublað sem finna má á vef verðlaunanna.

Tilnefningar skulu vera undirritaðar af að lágmarki 5 aðilum og skilað inn annað hvort á ensku eða frönsku.

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið hvetur öll til þess að tilnefna framúrskarandi einstaklinga eða samtök sem viðkomandi telja að eigi skilið að fá verðlaun fyrir framúrskarandi störf í þágu kynjajafnréttis.

Nánari upplýsingar um verðlaunin á vef Evrópuráðsþingsins

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta